Halló og velkomin í undraheima Pjattrófanna. Til að fylgjast með okkur er gott að notast við RSS. Takk fyrir að líta við!
Það er óhætt að segja að kjólar séu sterkasta hlið hönnuðarins Monique Lhuillier…
…Haust 2013 lína hennar inniheldur vægast sagt ótrúlega fallega kjóla í sterkum litum.
Kjólarnir eru ýmist skreyttir fjörðum, kögri, blúndu eða glitrandi perlum og steinum. Smáatriðin eru mögnuð og vinnan sem liggur á bakvið hvern og einn kjól er eflaust svakaleg.
Við eigum örugglega eftir að sjá einhverja kjóla línunnar prýða stjörnur á rauða dreglinum á næstu misserum.
Orð eru hreinlega óþörf!
_______________________________________________________________________
Myndir eru fengnar að láni frá Style.com
Source:
http://pjattrofurnar.is/2013/02/14/tiska-storfenglegir-kjolar-i-bodi-monique-lhuillier/?utm_source=rss&utm_medium=rss&utm_campaign=tiska-storfenglegir-kjolar-i-bodi-monique-lhuillier